Flúðasel 61, 109 Reykjavík
68.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
109 m2
68.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1976
Brunabótamat
53.510.000
Fasteignamat
59.400.000

Eignin er seld
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Flúðasel.

 Virkilega falleg, mikið endurnýjuð, fimm herbergja íbúð á fyrstu hæð með stæði í lokaðri bílageymslu á þessum vinsæla stað í Seljahverfinu.
Komið er inn í rúmgott hol með stórum skápum.
Eldhúsið, sem er allt endurnýjað, er með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Tæki í eldhúsi eru síðan 2022.
Stofan er stór og björt og útgengt er úr stofu út á rúmgóðar suðursvalir.
Baðherbergið sem er nýuppgert er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, upphengdu salerni og fallegri innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu.
Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, þau eru öll með fataskápum sem búið er að endurnýja.
Hjónaherbergið er einstaklega rúmgott með stórum skápum.
Sér geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni. Þar er einnig sameiginlegt þvottahús þar sem hver getur verið með sína vél, ásamt sameiginlegri hjólageymslu. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir með eigninni.

Íbúðin var öll endurnýjuð árið 2022.  Skipt var um allar hurðar, allar innréttingar, alla skápa og öll tæki. Einnig var skipt um öll gólfefni, alla ofna og rafmagn var endurnýjað. Að utan er búið að skipta um alla glugga á suðurhlið og allt gler á norður- og vesturhlið.
Múrviðgerðir og málningarvinna verður unnin núna í sumar og verður sá kostnaður greiddur af seljendum.

Þetta er  falleg eign á góðum stað í Seljahverfi þar sem stutt er í alla  þjónustu svo sem, skóla, leikskóla og verslun.

Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.