Fellsmúli 11, 108 Reykjavík (Austurbær)
53.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
58 m2
53.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1964
Brunabótamat
27.550.000
Fasteignamat
45.650.000

Eignin er komin í fjármögnunarferli
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Fellsmúla.

 
Virkilega falleg, vel um gengin, tveggja herbergja íbúð á annari hæð í fallegu, mikið endurnýjuðu fjölbýli  á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Komið er inn í hol með fataskáp sem tengir saman alla hluta íbúðarinnar.
Eldhúsið er  með vel með farinni innréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu.
Baðherbergið er með snyrtilegti innréttingu, upphengdu salerni og baðkari.
Svefnherbergið er stórt með góðum fataskáp.
Stofan er mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum. Úr stofunni er útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.
Gólfefni eru dúkur og parket.
 Í sameigninni er sér geymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Þetta er virkilega skemmtileg eign í mikið endurnýjuðu húsi á frábærum stað miðsvæðis í borginni þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem, skóla og leikskóla, verslun og íþróttastarf.
Viðhaldssaga íbúðar.  
Búið að skipta um ofna og ofnalagnir í íbúðinni. Skipt um tengla og rofa ásamt nýjum ídráttarvírum. Rafmagn og tafla yfirfarin.
Búið að skipta um glugga og gler í allri íbúðinni. 

Samkvæmt seljanda hefur verið farið í eftirfarandi framkvæmdir á sameignarhlutum.
2004 - þak endurnýjað
2007 - múrviðgerð og málun.
2010 - klæðning á austurgafl og nýjir gluggar í endaíbúðum í nr. 9.
2013 - nýjir gluggar á suður og vesturhlið. Nýtt gler, póstar og opnanleg fög á norðurhlið. 
2015 - skólplögn undir húsinu mynduð og fóðruð og lagt dren.
2018 – Forstofan endurnýjuð ásamt því að skipta um póstkassa og koma fyrir mynd dyrasíma.
2020 - klæðning á suður og vesturhlið. Norðurhlið múrviðgerð og máluð. Þak málað og skipt um svalarhandrið á öllum svölum og svalagólf máluð.
2024 - Sameignin öll tekin í gegn, bæði var málað og skipt um teppi

Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.

Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.