Opið hús fimmtudaginn 26. janúar að Suðurhólum 8 á milli klukkan 17:30 og 18:00. Verið velkomin.Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Suðurhóla.
Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð í snyrtilegu, töluvert endurnýjuðu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Breiðholti.
Komið er inn í rúmgott hol með stórum fataskáp.
Eldhúsið sem hefur allt verið endurnýjað er með fallegri hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Búið er að endurnýja öll tæki.
Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu.
Baðherbergið sem er nýlega endurnýjað er með fallegri innréttingu og baðkari. Salerni er upphengt. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og eru fataskápar í þeim öllum.
Stofan er rúmgóð og björt og útgengt er úr stofu út á stórar svalir með fallegu útsýni.
Í sameigninni er sér geymsla sem tilheyrir íbúðinni ásamt og hjóla og vagnageymslu. Samkvæmt eiganda hefur húsið verið töluvert endurnýjað, til dæmis var þak málað fyrir þremur árum, þá var húsið einnig spurnguviðgert og málað. Einnig er búið að skipta um hluta af gluggum.
Að innan var stigagangurinn og geymslugangurinn málaður fyrir ári síðan ásamt því að skipa um teppi á sameign.
Innan íbúðar var skipt um ofna fyrir rúmu ári síðan og rafmagnastaflan var endurnýjuð á síðasta ári. Baðherbergi og eldhús hafa verið endurnýjuð.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar parket og dúkur.
Þetta er skemmtileg eign á góðum stað í Breiðholti þar sem stutt er í þjónustu svo sem, skóla og leikskóla, íþróttir og verslun.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]