Heiðarsel 2, 109 Reykjavík
128.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
8 herb.
228 m2
128.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
96.280.000
Fasteignamat
116.300.000

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Heiðarsel.
Einstaklega fallegt og bjart sjö herbergja einbýlishús á tveimur hæðum, með bílskúr á þessum fallega stað í Seljahverfinu. Tilvalið hús fyrir stórar fjölskyldur.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofunni er innangengt í rúmgott þvottahús með sturtu og geymslu með góðu hillu plássi.
Gestasalernið var endurnýjað árið 2018.
Eldhúsið er mjög rúmgott. Þar er falleg, upprunaleg innrétting með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu.
Alrýmið skiptist í borðstofu, stofu og sjónvarpshol. Úr alrýminu er útgengt út í garðinn..              
Stofan er björt með stórum gluggum. Á milli hæða er timburstigi. Á efri hæðinni eru fimm mjög rúmgóð svefnherbergi. Yfir tveimur herbergjanna er milliloft.
Af hæðinni er útgengt út á stórar svalir sem ná yfir allt bílskúrsþakið.
Baðherbergið er rúmgott, þar er bæði sturta og baðkar.
Garðurinn er mjög fallegur,skjólgóður og í góðri rækt. Góður partur af honum er hellulagður. Heitur pottur er í garðinum sem var settur upp 2021.
Gólfefni eru  parket og flísar.
Innangengt er úr garðinum inn í bílskúr. Hiti er í planinu fyrir framan húsið. Í bílskúrinn er hleðslustöð fyrir rafbíla.
Húsið stendur á frábærum, skjólsælum stað. Fyrir aftan húsið er aflokaður sameignarreytur sem tilheyrir nokkrum húsum.
Samkvæmt eiganda hefur húsið verið töluvert endurnýjað, árið 2018 var húsið hreinsað að utan og málað. Árið 2019 var þak á bílskúr endurflotað með tveggja þátta þéttiefni og pallur byggður ofan á þakið. Árið 2021 var látið nýtt þakjárn á þakið ásamt nýjum þakgluggum. Árið 2021 var rafmagnstafla í bílskúr endurnýjuð, 3ja fasa rafmagn lagt og wolxox, 22 kwh hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl sett upp og tengi fyrir heitan rafmagsnspott. Árið 2022 var skipt um hluta af ofnum hússins.
Fasteignamat fyrir árið 2024 er kr: 116.300.000.-
Þetta er virkilega fallegt fjjölskylduhús, sem bíður uppá mikla möguleika á  eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla þjónustu,  sem vert er að skoða.

Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.