Laufrimi 28, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
62.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
64 m2
62.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1995
Brunabótamat
37.100.000
Fasteignamat
53.250.000

Eignin er komin í fjármögnunarferli.
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna með stolti Laufrima 28.

 
Virkilega falleg, vel um gengin, tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi, stæði í bílskýli og 30 fm skjólgóðum suðurpalli, í snyrtilegu fjölbýli á þessum vinsæla stað miðsvæðis í Grafarvogi. Húsinu tilheyrir stór garður með leiktækjum sem endurnýjuð voru í haust. Þá er búið að setja upp hleðslustöðvar við húsið.
 
 
*Sér inngangur á jarðhæð
*30 fm skjólgóður suðurpallur - ekki inni í fm tölu eignar
*Einkastæði í bílskýli - ekki inni í fm tölu eignar
*Spennandi eign sem hefur verið mikið endurnýjuð
 
 
Skráð stærð eignar skv. FMR er 64.2 fm. Íbúðin er merkt 01-02.
 
 
Nánari lýsing á eign
 
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
 
Eldhús er með snyrtilegri, hvítri innréttingu með góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu þar sem öll helstu tæki hafa verið endurnýjuð.
 
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu og falleg innrétting.
 
Svefnherbergið er afar rúmgott með góðum skápum.
 
Stofan er björt með stórum gluggum. Útgengt er úr stofu út á nýlegan, aflokaðan, skjólgóðan sólpall til suðurs.
 
Þvottahús og geymsla með hillum er innan íbúðar með góðri vinnuaðstöðu.
 
Gólfefni eru nýlegt parket og flísar.
 
Opið bílskýli fylgir íbúðinni sem ekki er inni í fermetratölu eignarinnar.
Þar við hlið er hjóla og vagnageymsla
 
Þetta er falleg eign á góðum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í þjónustu svo sem, skóla, leikskóla sem er í götunni, og verslunarkjarnann í Spöngina sem er í mínútu göngufjarlægð.
Helstu breytingar síðustu ár
 
Lagt var Pergo parket á íbúð.
Skipt var um flísar í forstofu og settur upp nýr fataskápur.
Tenglum og rofum var skipt út fyrir dökkt efni frá Gira.
Bakaraofn og spanhelluborð frá Electrolux.
Borðplata endurnýjuð ásamt vaski og blöndunartæki frá Grohe.
Nýr skápur á baðherbergi ásamt því að skipt var um vask og blöndunartæki frá Grohe.
 
 
 
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.