Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Sóleyjarima.
Íbúðin getur verið laus við kaupsamning. Virkilega falleg, vel um gengin, þriggja herbergja íbúð í lyftuhúsi með sér inngangi af svölum í snyrtilegu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Grafarvoginum.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu.
Sér þvottahús er í íbúðinni.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði sturta og baðkar.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í báðum herbergjum.
Stofan er stór og björt og útgengt er úr stofu út á yfirbyggðar svalir með frábæru útsýni.
Stæði í lokaðrii bílageymslu fylgir með íbúðinni ásamt sér geymslu í sameign.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket.
Þetta er falleg eign á góðum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í þjónustu svo sem, skóla og leikskóla og verslun.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]