Kristnibraut 25, 113 Reykjavík (Grafarholt)
105.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
142 m2
105.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2001
Brunabótamat
76.720.000
Fasteignamat
91.650.000

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Kristnibraut.
 
Virkilega falleg, einstaklega rúmgóð, vel um gengin, fimm herbergja endaíbúð á þriðju hæð  með stæði í lokaðri bílageymslu í snyrtilegu fjölbýli á þessum eftirsótta stað í Grafarholti.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með tvöföldum fataskáp.
Eldhúsið er rúmgott með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi. Innst í eldhúsinu er borðkrókur. Í eldhúsinu er búið að endurnýja borðplötu, vask, blöndunartæki, helluborð og viftu. Stofan er einstaklega rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu. Úr stofunni er útgengt út á stórar svalir með nýrri svalalokun. Stórkostlegt útsýni er af svölunum
Sér þvottahús er í íbúðinni með góðri innréttingu.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf þar er baðkar, sturtuklefi, upphengt salerni og ný innrétting.
Fjögur  rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í öllum herbergjum.
Hjónaherbergið er einstaklega rúmgott, þar væri auðvelt að útbúa fataherbergi.
Sér geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, sem og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og nýlegt  harðparket. Búið er að filma allar hurðar og fataskápa ásamt eldhúsinnréttingu.
Þetta er  falleg, rúmgóð, vel um gengin eign sem hefur verið töluvert endurnýjuð á góðum stað í Grafarholti  þar sem stutt er í alla  þjónustu svo sem, skóla, leikskóla, íþróttir og verslun.


Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.