Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Breiðuvík 16
Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á frábærum stað í Grarfvogi. Björt og vel skipulögð íbúð á annari hæð með góðum lokuðum svölum.
Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 90,2 m², þar af er rúmgóð geymsla í sameign skráð 8 m².
Lýsing íbúðar:Gengið er inn í íbúðina um sérinngang úr opnu stigahúsi.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa er í rúmgóðu, björtu og fallegu parketlögðu rými, góðir gluggar og útgengt út á góðar svalir með svalalokun.
Eldhús tengist stofu og er þannig hluti af alrými íbúðarinnar. Innrétting er viðarlit.
Svefnherbergi I rúmgott hjónaherbergi er með gólfdúk og góðum skápum.
Svefnherbergi II gott barna eða gestaherbergi, með skápum og teppi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með vaskinnréttingu, sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús er innan íbúðar, ágætt vinnurými og smá geymslurými einnig. Flísar á gólfi.
Svalir eru flísalagðar og lokaðar af með svalalokun og nýtast því vel hvernig sem viðrar.
Geymsla er stór og góð (8 m²) í snyrtilegri sameign í kjallara hússins.
SameignÍ sameign á jarðhæð er sameiginleg hjóla og vagnageymsla og í kjallara eru sérgeymslur og sameiginleg dekkjageymsla.
Snyrtilegur afgirtur garður er í kringum húsið og næg bílastæði eru til staðar fyrir þær 16 íbúðir sem í húsinu eru.
Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað í Grafarvogi. Stutt er í alla helstu grunnþjónustu, s.s. skóla og leikskóla.
Í næsta nágrenni er svo verslunarkjarninn Spöngin, og einnig Egilshöll með allri þeirri þjónustu sem þar er boðið uppá.
Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
[email protected]