Þrastarhólar 8, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
144 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1979
Brunabótamat
71.240.000
Fasteignamat
82.350.000

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Þrastarhóla.
 

Virkilega falleg, einstaklega rúmgóð, vel um gengin, fimm herbergja íbúð á þriðju hæð  í snyrtilegu fjölbýli á þessum eftirsótta stað í Breiðholti. Eigninni fylgir rúmgóður bílskúr.
Komið er inn í stórt hol sem tengir alla hluta íbúðarinnar. Inn af holinu er gestasalerni með upphengdu salerni.
Eldhúsið er rúmgott með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi. Innst í eldhúsinu er borðkrókur. Inn af eldhúsinu er búr.
 Stofan er einstaklega rúmgóð og björt með stórum gluggum. Úr stofunni er útgengt út á stórar svalir. frábært útsýni er af svölunum.
Sér þvottahús er í íbúðinni.
Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf hefur verið töluvert endurnýjað. Þar er baðkar, ný walk in sturta, upphengt salerni og falleg innrétting.
Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í hjónaherbergi, einnig eru góðir skápar á svefnherbergisgangi. Úr hjónaherberginu er útgengt út á svalir með frábæru útsýni.
Sér geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, sem og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Bílskúrinn er virkilega snyrtilegur og rúmgóður.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket.
Þetta er  falleg, rúmgóð, vel um gengin eign  á góðum stað í Breiðholti,  þar sem stutt er í alla  þjónustu svo sem, skóla, leikskóla, íþróttir og verslun.


Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.