Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Grundarhús.Falleg og björt þriggja til fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð í litlu fjölbýli á þessum eftirsótta stað í Grafarvoginum.
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu. Inn af forstofunni er rúmgott hol með stórum fataskáp.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og upp á miðja veggi. Þar er baðkar, upphent salerni og falleg innrétting.
Stofan er björt , með útgengi út á stórann, skjólgóðan, lokaðann pall. Einnig er útgengt út á pallinn úr hjónaherbergi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með skápum. Eignin er skráð fjögurra herbergja, eitt herbergi var tekið niður til þess að stækka stofuna.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu, skápapláss er gott og vinnuaðstaða góð.
Gólfefni eru nýlegar físar.
Sér þvottahús er innan íbúðarinnar með góðri innréttingu.
Búð er að skipta um allt gler í íbúðinni og allar innihurðar.
Þetta er virkilega falleg eign á vinsælum stað sem vert er að skoða.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is