Æsufell 2, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
64.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
92 m2
64.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1972
Brunabótamat
45.600.000
Fasteignamat
57.200.000

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Æsufell 2.
 
Virkilega vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í mikið endurnýjuðu fjölbýli í Breiðholti.
Komið er inn í rúmgott, flísalagt hol með fataskáp.
Eldhúsið sem er flísalagt, er með ljósri innréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Góður borðkrókur er í eldhúsinu, þaðan sem gengið er út á rúmgóðar svalir. Inn af eldhúsi er búr sem eykur geymslupláss.
Baðherbergið hefur nýlega verið endurnýjað. Það er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, baðkari og fallegri innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu.
Þrjú parketlögð svefnherbergi eru í íbúðinni og eru tvö þeirra með fataskáp. Þriðja svefnherbergið er með léttum veggjum sem hægt er að taka niður og stækka þannig stofuna.
Rúmgóð og parketlögð stofa er staðsett í miðrými íbúðarinnar.
Allar hurðar íbúðarinnar hafa verið endurnýjaðar.
Sér geymsla í sameigninni tilheyrir íbúðinni. Í sameigninni er stórt og nýuppgert þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
 
Húsið lítur vel út og virðist hafa fengið gott viðhald á undanförnum árum. Allir gluggar hafa verið endurnýjaðir, húsið er að hluta með nýlegri klæðningu en sá hluti sem ekki er klæddur er nýlega málaður.
Tengi fyrir rafbíla er á sameiginlegu bílastæði.
 
Þetta er skemmtileg eign á góðum stað í Breiðholti þar sem stutt er í þjónustu, svo sem skóla og
leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslun.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. fagleg og góð þjónusta.
 
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.