Ásvellir 1a - íbúð , 301 Akranes
71.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
99 m2
71.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2025
Brunabótamat
72.000.000
Fasteignamat
62.550.000

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna íbúð 203 að Ásvöllum 1a, 301 Akranesi (Hvalfjarðarsveit).
Rúmgóð og björt fjögurra herbergja íbúð á annari hæð í nýju fjölbýlishúsi á þessum skemmtilega og spennandi stað.
Íbúðin skilast fullbúin að innan sem utan með innréttingum, gólfhita og parketi og flísum á gólfum.

 
Íbúð 203 er á annari hæð og er hún að fullu tilbúin og getur verið afhent strax við kaupsamning.
**  Pantið skoðun hjá Rúnari Erni í síma 771-5600 eða á netfanginu: [email protected] **


Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 99 m² og er geymsla innan íbúðar ásamt plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eignin skiptist í: Forstofu, alrými með stofu / borðstofu og eldhúsi + stórar svalir, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Lýsing íbúðar:
Gengið er inn í íbúðina um sérinngang á opnum svalagangi eftir að gengið er upp stóran og snyrtilegan lokaðan stigagang.
Forstofa er mjög rúmgóð, með góðum skáp og flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa er í rúmgóðu, björtu og fallegu alrými með eldhúsinu. Parket á gólfum og útgengt á stórar svalir til suðvesturs.
Eldhús er í alrýminu með hvítri innréttingu frá IKEA og tækjum frá Samsung og Siemens. Ofninn er frá Samsung og er tvískiptur. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með góðum skápum. Extra stór skápur í hjónaherbergi. Gólf herbergja eru parketlögð.
Baðherbergi er flísalagt að hluta, góð vaskinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni og rúmgóð walk-in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar, ágætt rými þar sem er einnig rafmagnstaflan og inntak og stýring fyrir gólfhita íbúðarinnar.
Svalir eru mjög stórar og rúmgóðar og ná yfir alla breidd íbúðarinnar. Vandaðir skjólveggir úr gleri. Útgengi á svalir er úr alrýminu.

Sameign
Sameiginlegur stór og rúmgóður teppalagður stigagangur er upp á aðra hæð hússins. Þaðan er gengið út á svalir og hver íbúð hefur þar sérinngang.
Í snyrtilegu húsi á lóðinni er sameiginleg hjóla og vagnageymsla (nýtist með Ásvöllum 1b) og þar eru einnig allar lagnir teknar inn fyrir bæði húsin.
Lóðin kringum húsið er snyrtileg og grasivaxin. Gangstígar eru hellulagðir.
Bílastæði verða fyrir framan húsið og er búið að gera ráð fyrir að hægt verði að setja upp rafhleðslustöðvar í stæðum með lítilli fyrirhöfn.

Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað í uppbyggingu sem skráður er sem 301 Akranes, en tilheyrir Hvalfjarðarsveit.
Stutt er í alla þá þjónustu sem í boði er á Akranesi.


Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.