Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Hlíðarveg.Vel staðsett 213,8 fm parhús, á tveimur hæðum auk kjallara, við Hliðarveg 32 í suðurhlíðum Kópavogs. Eigninni fylgir rúmgóður 40 fm bílskúr. Rúmgóð stofa, garður í suður með skjólveggjum. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 213,8 fm. Þar af er ibúðarrými 173,8 fm og bílskúr 40 fm. Aðalhæð er skráð 72,8 fm, efri hæð 68 fm og kjallari 33 fm.
Nánari lýsing:Aðalhæð: Komið er í flísalagða forstofu með skáp og fatahengi. Til vinstri frá forstofu er flísalögð gestasnyrting með og opnanlegum glugga. Á gestasalerninnu er einnig þvottahús með góðri innréttingu í kringum tæki..
Frá forstofu er komið í flísalagt hol. Úr holinu er annarsvegar gengið inn í rúmgott eldhús með ágætis innréttingu og góðum borðkrók og hinsvegar mjög rúmgóða og bjarta stofu, borðstofu og sólskália. Frá sólskálanum er gengið niður í suður garð með verönd og skjólvegg. Parket á stofu og borðstofu en búið er að kaupa samskonar flísar á þessi rými og eru á öðrum rýmum hússins.
Efri hæð: Skiptist í gang, fjögur svefnherbergi, öll með skápum og baðherbergi. Hjónaherbergið er með stórum skáp og útgengi út á litlar suður svalir. Baðherbergið hefur allt verið endurnýjað, þar er valk in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og falleg innrétting. Mjög fallegt útsýni er frá efri hæð hússins.
Kjallari: Frá gestasalerni/þvottahúsi er gengið niður í kjallara sem er óinnréttaðurÞar var hugsunin að útbúa stúdíóíbúð. Lagnir er util staðar bæði fyrir eldhús og baðherbergi. Sér innbangur er í kjallarann af gafli hússins, þannig að ef nýr eigandi heldur áfram með hugmyndina um litla íbúð þá eru komnir góðir leigumöguleikar.
Bílskúr er rúmgóður með fjarstýrðum hurðaopnara, hita og rafmagni. Bílastæði fyrir framan bílskúr.
Eignin hefur verið töluvert mikið endurnýjuð. Nýjir gluggar eru í öllu húsinu nema í stofu, sólstofu og kjallara. Búið er að endurnýja allar vatns og raflagnir alveg út í götu, baðherbergið hefur allt verið endurnýjað og búið að að láta nýjar flísar á allt húsið fyrir utan eldhús, hol,stofu og kjallara, en flísar á þessi rými eru til. Einnig hefur verið skipt um útidyrahurð.
Eignin er vel staðsett þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Þjónustukjarninn í Hamraborg,,skóli, menntaskóli, æfingasvæði Breiðabliks og Sundlaug Kópavogs eru í göngufjarlægð.
Þetta er vel skipulagt parhús á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is