Kaldakinn 29, 220 Hafnarfjörður
95.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
5 herb.
118 m2
95.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1963
Brunabótamat
60.850.000
Fasteignamat
77.550.000

Rúnar Örn fasteignasali kynnir Köldukinn 29. Glæsileg 4ra herbergja íbúð á þessum eftirsótta stað í Hafnarfirði

Rúmgóð og björt fjögurra herbergja, mikið endurnýjuð, íbúð á efri hæð í þessu fallega húsi í Kinnunum í Hafnarfirði.
Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 118,6 m² og að auki er sérgeymsla í kjallara sem ekki er í fermetratölu íbúðarinnar.
Eignin skiptist þannig: Forstofa með sérinngangi, stofa / borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Nánari lýsing íbúðar:
Forstofa með sérinngangi, rúmgóð, með góðum skáp og flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa er í rúmgóðu, björtu, opnu alrými með eldhúsinu. Parket á gólfum.
Eldhús er í opna alrýminu með góðri hvítri innréttingu og góðu vinnuplássi. Borðplata er kvartssteinn frá Granítsmiðjunni og parket á gólfi.
Þvottahús er innangengt úr eldhúsi. Gott vinnurými með glugga og góð innrétting. Límflísar á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú talsins. Parket á gólfum og stór og góður skápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og límflísum á gólfi, góð vaskinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni og walk-in sturta.
Sérgeymsla er í kjallara hússins. Hún er ekki í fermetratölu íbúðarinnar.
Sameign stór og skjólsæll pallur ásamt grasflöt sem er sameign efri hæðar og miðhæðar.
 
Hér er um að ræða góða útsýnisíbúð á efri hæð í þessu þríbýli á frábærum stað í Kinnunum í Hafnarfirði.
Stutt er í alla þá þjónustu sem í boði er í nágrenninu og falleg útivistarsvæði í þessu rólega og gróna hverfi. 
Frábær eign fyrir barnafjölskyldu með bæði Öldutúnsskóla og Flensborg í stuttri göngufjarlægð. 

Framkvæmdir 2018 í íbúð skv. seljanda:
-Loftið rifið - einangrað, rakavarið og klætt með gifsi. Innfelldir kastarar og brautir sett. Lýsingarhönnun: Lumex
-Sett nýtt rafmagn
-2 nýjir ofnar í stofu
-Nýtt parket (plastparket Parki) og listar Sérefni
-Nýir fataskápar í svefnherbergi
-Nýir sólbekkir

Aðrar framvkæmdir við eignina skv. seljanda:
2018 - Dælt epoxy í plötuskil og sprungur á húsi.
2019 - Skipt um alla glugga í húsinu og ný útihurð.
2020 - Húsið pússað og háþrýstiþvegið inn að steypu
2020 - Húsið múrað og sílanborið
2021 - Húsið málað
2024 - Lóðin slétt og sett nýtt gras
2026 - Ný aðaltafla fyrir rafmagn


Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.