Baughús 18, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
177.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
10 herb.
272 m2
177.900.000
Stofur
3
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
108.350.000
Fasteignamat
172.700.000

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Baughús.
Einstaklega fallegt og bjart einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað í Grafarvogi.
Á neðri hæð hússins er auka fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi ásamt ca. 30 fm. herbergi einnig með sér inngangi.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og stórum fataskáp. Úr forstofunni er komið inn í flísalagt alrými sem tengir saman alla hluta hæðarinnar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Þar er snyrtileg, innrétting, baðkar og sturtuklefi.
Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú, stórir skápar eru í hjónaherbergi.
Eldhúsið er með nýlegri, fallegri  innréttingu, þar er mikið skápapláss og virkilega góð vinnuaðstaða. Góður borðkrókur er í eldhúsinu.
Borðstofan er rúmgóð og björt, þaðan er útgengt út á stórar svalir sem ná yfir tvær hliðar hússins.
Stofan er virkilega rúmgóð og björt með stórum gluggum. Fyrir framan húsið er  skjólgóð, aflokuð verönd sem er á milli hússins og bílskúrsins. Þar er heitur pottur og garðskúr.
Á milli hæða er steyptur stigi. Niðri er stórt þvottahús og geymsla sem er ekki skráð inn í fermetratölu hússins.
Neðri hæð.
Fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi af  gafli hússins. Þar eru þrjú rúmgóð herbergi, stórt miðrými sem skiptist í stofu og eldhús ásamt baðherbergi með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.
Þarna er líka stórt ca. 30 fermetra fermetra herbergi, við hlið þess herbergis er baðherbergi með sturtuklefa. Möguleiki er á útleigu þar sem þetta herbergi hefur einnig sér inngang af gafli hússins.
Stórt þvottaherbergi ásamt geymslu er á hæðinni sem er nýtt af efri hæð í dag, þetta rými er ekki inn í skráðri fermetratölu  hússins.
Garðurinn fyrir framan húsið er í sérlega góðri rækt. Þar er skjólgóður pallur / verönd með heitum potti og geymsluskúr.
Tvöfaldur stór bílskúr er framan við húsið. Gönguhurð er í bílskúrinn á hlið hans.
Gólfefni hússins eru parket og nýlegar flísar.
Þetta er virkilega fallegt, vel skipulagt fjölskylduhús sem bíður uppá mjög mikla möguleika vegna auka íbúðarinnar. Húsið er á frábærum stað í húsahverfinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla íþróttastarfið hjá Fjölni.


Vantar allar gerðir eigna á skrá. fagleg og góð þjónusta.
 Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
Sími 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is







 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.