Kleppsvegur 40, 105 Reykjavík (Austurbær)
61.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
63 m2
61.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1963
Brunabótamat
33.200.000
Fasteignamat
51.250.000

Rúnar Örn fasteignasali kynnir Kleppsveg 40 - 2ja herbergja íbúð á þessum vinsæla stað.
Björt og vel skipulögð íbúð á 4. hæð með frábæru útsýni.


                          ** TILVALIN FYRSTU KAUP **

Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 63,4 m², þar af er sérgeymsla í sameign skráð 3,7 m².
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, baðherbergi, stofu með útgengi á svalir og svefnherbergi ásamt sérgeymslu í sameign.

Nánari lýsing:
Anddyri / hol er ágætt rými með fataskáp, parket á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með stórum fallegum gluggum. Útgengt á góðar svalir. Parket á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu og viðarborðplötu. Innbyggð uppþvottavél og parket á gólfi
Herbergi er mjög rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi
Baðherbergi er flísalagt. Ágæt vaskinnrétting og góð sturta.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, 3,7 m²
Sameign snyrtilegur stigagangur og sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í kjallara.
Garður stór sameiginlegur gróinn garður er bakvið húsið.
Í íbúðinni eru engir ofnar heldur geislahitun (hiti frá lofti).

Björt og vel skipulögð íbúð í þessu vel hirta fjölbýli á vinsælum stað í Laugalækjahverfinu. Stutt í fjölbreytta þjónustu og verslun í nágrenninu.
Stutt í Laugardalslaug, World Class, og aðra afþreyingu í Laugardalnum. Laugalækjaskóli og leikskóli eru í göngufæri.
Strætóstoppistöð er beint fyrir framan húsið og ágæt bílastæði einnig.

Upplýsingar frá seljanda:
Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2019. Innréttingar eru frá Ikea og innbyggð uppþvottavél fylgir. Fljótandi parket er frá Álfaborg.
Á baðherbergi var sett upp ný sturta, vaskur, innrétting, vifta, salerni og flísar. Skipt var um rafmagnstengla í íbúðinni.


Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.