Rúnar Örn fasteignasali kynnir Barðastaðir 7 - 3ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð.
Frábær staðsetning í Grafarvoginum í þessu vel um gengna fjölbýlishúsi.Vel skipulögð íbúð á sjöttu hæð með frábæru útsýni og góðum svölum.
Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 100,9 m², þar af er rúmgóð geymsla í sameign skráð 7,9 m².
Lýsing íbúðar:Forstofa er með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Hol er rúmgott í miðrými íbúðar þaðan sem gengið er í önnur rými. Parket á gólfi.
Stofa er í björtu og fallegu parketlögðu rými, góðir gluggar með frábæru útsýni, aukin lofthæð og útgengt á góðar svalir.
Eldhús tengist stofu og er þannig hluti af alrými íbúðarinnar. Góð innrétting með góðum tækjum. Eyja með helluborði.
Svefnherbergi I rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II gott barna eða gestaherbergi, með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vaskinnrétting, baðkar með sturtu og upphengt salerni.
Þvottahús er innan íbúðar inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og innrétting.
Geymsla er stór og góð (7,9 m²) í snyrtilegri sameign hússins.
Dyrasími með mynd. Sjálfvirk hurðaropnun á útidyrum.
SameignSnyrtileg sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara ásamt sérgeymslum íbúða.
Snyrtilegur garður er í kringum húsið og næg bílastæði. Settar hafa verið upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á stæðinu.
Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað í Grafarvogi. Stutt er í alla helstu grunnþjónustu, s.s. skóla og leikskóla.
Golfvöllurinn er rétt hjá, einnig frábærar gönguleiðir og aðrir útivistarmöguleikar allt um kring.
Í næsta nágrenni er svo verslunarkjarninn Spöngin ásamt Egilshöll með allri þeirri þjónustu sem þar er boðið uppá.
Stoppistöð strætó er við hlið hússins.
Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
[email protected]